|
|
 |
| |
Wednesday, August 25, 2004 |
Fór ásamt systur minni að hitta konu útaf átaksnámskeiði sem við skráðum okkur í .... vonandi bara að við komumst í það. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema það að þegar hún var búin að spalla við okkur í smá tíma fór hún að spá í hvað við værum nú þungar!!! Hún horfði á mig og sagði... nærð þú 70 kílóum... WHAT... var þetta nú ekki aðeins of mikið... hehe. Þegar ég sagði henni að ég væri ein 94 kg... þá varð hún voða hissa.... hehe og starði á mig og sagði...vá hvað er þá þungt í þer...
Varð bara svon að skella þessu hérna inn... læt heyra í mér fljótlega aftur ... svona þegar allt verður komið í gang af fullum krafti...
Posted at 04:10 pm by feitabolla
| |
Wednesday, August 18, 2004 |
jæja það eru nú sennilega ekki margir sem villast hingað inn...... en þessi síða er nú meira svona pepp fyrir mig þannig að það skiptir nú kannski ekki svo miklu máli.
þó að ég sé nú ekki búin að vera í sérstöku átaki í sumar þá hefur mér tekist að ná mér örlítið niður, í morgun þegar ég steig á vigtina var ég 94,6 kg og mikið er ég nú ánægð að vera komin niður fyrir þennan 95 þröskuld..... og þá bara ekki að fara yfir hann aftur hummmmmm ;) og það skal sko takast, ég er ákveðnari en aldrei fyrr. takk fyrir...
Posted at 04:15 pm by feitabolla
Ég er ekki hætt.... það er bara svolítið að gera núna, síðasta vikan í skólanum er að skella á, svo eru það tvær vikur af prófum..... ARGGG, ég er að fara á límingunum, ekki komin með sumarvinnu, fer sjálfsagt í heimahagana, í sveitina, því kallinn minn er komin með vinnu þar. Var samt að vonast eftir því að geta bara verið hér í sumar, enn það verður sennilega ekki svo einfallt.
Þessar síðustu vikur hafa ekki verið góðar, búin að vera veik, borða geggjað mikið og óhollt..... og maður gersamlega blæs út, þó að vogin standi svona ca. í stað....
Ég keypti mér herbalife te svona til þess að lifa prófa törnina af..... því ég drekk ekki kaffi og ekki getur maður lifað á Magic eða einhverju svoleiðis sulli...... vona að allt gangi bara upp.... svo eftir 14 mai verður allt sett á fullt í ræktinni...... þangað til ..... Gangi ykkur barasta svakalega vel.
Skellti inn nokrum linkum... svona loksins þegar ég fattaði hvernig átti að fara að því ;)
Posted at 04:11 am by feitabolla
Mig langaði að benda á hvað ég borða á morgnanna.
Ég hef aldrei getað borðað á morgnanna og svo um kl 10 þá er ég altaf orðin geggjaðslega svöng og treð gersamlega í mig öllu því sem hönd á festir! Enn ég fór á Herbalife þá lærði ég að borða morgunmat, þetta er svo sannalega aðalmáltíð dagsins, eftir að ég hætti á herbalife þá var ég lengi að finna mér eitthvað morgunkorn sem virkaði fyrir mig, ekkert gekk og ég fór þá bara að fá mér herbalife sheik í morgun mat og það virkaði vel á mig, þangað til að ég fékk ógeð, þá prófaði ég weetabix, það er hrein snilld. Síðan í október hef ég alltaf fengið mér weetabix og jógúrt í morgunmat, og það svínvirkar. Þetta var nú ekkert spes þegar ég var að byrja að borða þetta, enn núna er ég gersamlega sjúk í þetta. Ég fæ mér alltaf tvo fleka af weetabixinu og svo slatta af léttjógúrt. það sem þarf að passa er að láta þetta ekki standa...þá verður þetta svolítið ógirnileft og klígjuvaldandi...hehe. svo bara að muna að taka með þessu lýsi og vítamín, svo er maður saddur vel fram yfir hádegi, þó að það sé voða gott að fá ség kíví eða eitthvað svona í millitíðinni og ekki verða svakalega svangur því að það er svo hættulegt, þá borðar maður gersamlega á sig gat.
Mæli með þessu.
Posted at 03:11 pm by feitabolla
jæja nú er langt síðan ég hef tjáð mig hérna, átakið hefur gengið svona upp og niður. Ég tók átakið föstum tökum og það skilaði auðvita sínu á þessum mánuði sem ég var sem duglegust þá misti ég 3,5 kg fór reyndar ekki í fitumælingu enn mikið var ég glöð að allt gekk svona vel. Núna er svo brjálað að gera í skólanum að ég hef voðalega lítið hreyft mig nema að labba í skólann sem er svo sem ágætis hreyfing. Þannig er mál með vexti að ég tók bílinn minn af skrá til þess að ég myndi nú labba meira, en það kemur niður á ferðum í ræktina sem er aðeins of langt í burtu, það tekur mig alveg 2 tíma að labba í ræktina, púla, fara í sturtu og heim aftur, það er bara tími sem ég get ekki séð af eins og er.
Þegar það er svona mikið að gera hjá mér þá vill matarræðið fara gersamlega úr skorðum, gosið er rosalega góður og fljótlegur orkugjafi og heldur manni vakandi... enn nú hef ég drukkið mitt síðasta gosglas, þrátt fyrir það að páskahátíðin sé að ganga í garð og prófin að byrja... ég skal, ég vil, ég get.
Ég nældi mér í einhverja fjandans pest og er búin að liggja í rúminu með hor og hita..... ekki það skemmtilegasta sem maður lendir í nema það að maður missir matalistina og borðar því afskaplega lítið (ég píndi nú samt eitthvað ofan í mig maður má ekki svelta sig). Í dag steig ég á vigtina og þar var skemmtileg tala 98,5 kg.... þannig að ég hef losað mig við 4,5 kg.
Átakið mitt fellst aðalega í því að vigta ofan í mig og reykna út orku innihald þess sem ég innbyrgði, ég er ekki á einhverju sér fæði heldur ég borða bara miklu minna en ég gerði, ég reyni að fara ekki yfir 1650 kkal. Svo þegar ég er á fullu í átakinu þá fer ég í ræktina annanhvern dag og er í klukkutíma í senn. Ég fékk aðstoð við að byrja, ég fór til einkaþjálfara sem hjálpaði mér rosalega mikið. Takk Dean.
En nú er smá pása í þessu öllu saman, svona eins og mánuðu enn þá eru prófin liðin og þá tek ég þetta aftur traustataki.
Mikið væri gott að hafa einhvern félaga í ræktinni á svipuðu róli, vantar smá pepp, ef einhvern á Akureyri vantar pússt þá er ég alveg til, hafið bara samband...
Posted at 02:47 pm by feitabolla
| |
Monday, February 23, 2004 |
Ég hef ákveðið að taka mig gersamlega í gegn líkamlega jafnt sem andlega.
Í þetta skiptið ákvað ég að taka þetta með trompi, taka mataræðið gersamlega í gegn, fékk til liðs við mig einkaþjálfara.
Hér kemur smá bakgrunns tékk.
ég er 23 ára
160 cm á hæð
og á miðvikudaginn 18 febrúar var ég mæld í bak og fyrir og
vó 103 kg,
fitan var 42,7%
vövarnir 44,0%
ég hef reynt allskonar skyndilausnir enn þær hafa virkað mis vel já eða illa
reyndi reyndar Herbalife og losnaði við ein 11 kg, varð svo kærulaus, lærði að svo að svindla á sjálfri mér og setti svo á mig einum 7 kg. varð þunglyndari enn allt.
ég hef reyndar alltaf verið þunglynd enn þetta var nú orðið frekar mikið.
Ég er alin upp í sveit, var frekar aktívt barn alltaf út um allt.
Það var fyrst þegar ég var 11 ára að ég fékk að heyra það að að ég væri feit, svo þegar ég var 14 ára þá sagði skóla hjúkkan að ég væri nú að ná eðlilegri þyngd en ég hefði nú alltaf verið feitt barn. Hver segir svona við gelgju sem hugsar ekki um annað en um eigin þyngd.
enn jæja ég ætla samt ekki að vera að kenna neinum um hvernig komið er fyrir mér, nema mér sjálfri það er að segja.
enn þessi síða er mín opinberun á mínu vandamáli og hér er hægt að lesa um hvernig þetta gengur allt saman.....þannig að .....vííí sjáumst
Posted at 03:38 pm by feitabolla
| |
Wednesday, February 18, 2004 |
jæja, á þessari síðu mun ég lýsa átaki mínu sem hófst fyrir alvöru í dag
Posted at 12:21 pm by feitabolla
|